Okkar markmið er að allir noti húð- og hárvörur sem eru góðar fyrir þig og umhverfið. Allar okkar vörur eru umhverfisvænar og 100% náttúrulegar. Við notum aðeins innihaldsefni sem eru samþykkt af Ecocert.
Liður í því að vernda umhverfið er að bjóða upp á áfyllingar á umbúðirnar þegar varan klárast á lægra verði.
Við notum aðeins bestu fáanlegu hráefni í okkar vörur og trúum því heilshugar að notkun náttúrulegra snyrtivara stuðli að betri vellíðan fyrir þig og jörðina okkar.
Hrein vellíðan, hrein jörð.
ÁFYLLINGASTAÐIR
Sóley Organics, Hólmaslóð 5, Reykjavik
Heilsuhúsið, Kringlunni, 103 Reykjavík
Íslandsapótek, Laugavegur 53b, 101 Reykjavík
Matarbúðin Nándin, Austurgata 47, 220 Hafnarfjörður
Vistvæna búðin, Brekkugata 3, 600 Akureyri
Hagkaup, Skeifunni, Kringlunni, Smáralind, Garðabæ
Allflestar okkar vörur eru fáanlegar til í áfyllingar í verslun okkar á Hólmaslóð Rvk, en úrvalið er síðan mismunandi eftir endursöluaðilum og plássi í hverri verslun.
Við biðjum viðskiptavini að gæta að því að koma með umbúðirnar hreinar og þurrar þegar fyllt er á.