Lóuþræll

Við bjóðum Lóuþræl handsápu og handspritt velkomin í hópinn. Þetta er sérstök útgáfa og því aðeins til í takmörkuðu magni, þannig að fyrstur kemur fyrstur fær.

Lóuþræll ilmar af sítrónugrasi og mandarínu ilmkjarnaolíum og er því mjög frískandi.

Lóuþræll handsápa er náttúruleg sápa sem hreinsar hendurnar vel og mýkir þær þrátt fyrir tíðan handþvott. Í mildri sápunni eru handtíndar jurtir úr íslenskri náttúru sem veita dásamlegan ilm og vernda hendurnar fyrir þurrki og kulda. Lóuþræll hefur að geyma áhrifaríka blöndu íslenskra lækningajurta, birki og vallhumall. Birki inniheldur flavonióða sem er talið hafa bakteríu- og veirudrepandi  áhrif. Vallhumall hefur í gegnum ættliði verið notuð til að mýkja og styrkja húðina. 

Lóuþræll handspritt er blanda græðandi íslenskra jurta og frískandi ilmkjarna. Handspritt kemur ekki í staðin fyrir reglulegan og góðan handþvott en er góð viðbót. Í handsprittinu er áhrifarík blanda handtíndra lækningajurta, birki og vallhumall. Birki inniheldur flavonióða sem er talið hafa bakteríu- og veirudrepandi  áhrif. Vallhumall hefur í gegnum ættliði verið notuð til að mýkja og styrkja húðina. 

Það er æskilegt að nota handsápu með mildum sápuefnum til að vernda húðina svo að hún þorni síður eða verði sár. Þó að sápuefnin séu mild hafa þau sömu hreinsieiginleika og önnur.

Lóuþræll í öllu sínu veldi

lóuþræll