Græðir Essentials
Græðir ferðasettið kemur í fullkominni stærð til að hafa í æfingatöskunni, handtöskunni og í handfarangrinum. Þessar lúxus ferðastærðir gera snyrtitöskuna léttari og koma sér vel hvert sem þú ferð.
Settið inniheldur:
Græðir sjampó - 50ml. Græðir shampoo er tilvalið fyrir vandamála hársvörð og hefur sýnt virkni á alls konar exem, ertingu í hársverði, þurrkbletti og sóríasis.
Græðir hárnæring - 50ml. Græðir hárnæring nærir og róar þurrt hár og vandamála hársvörð.
Græðir handáburður - 50ml. Lífrænt vottaður handáburður fyrir þurra og þreytta húð.
Græðir smyrsl - 5ml. Öflugt græðismyrsl sem hefur sýnt virkni á alls konar exem, á sóríasis, kláða, brunasár, sveppasýkingu, bleyjuútbrot, þurrkbletti og minniháttar sár.
Græðir vörurnar áhrifaríkar og innihalda öfluga blöndu af handtíndum, villtum, íslenskum lækningajurtum. Lífrænt vottað og framleitt á Íslandi.